Saturday, February 03, 2007

Tillitsleysi

Hvað er alltaf verið að nudda mani uppúr því þó maður sé ekki´í réttri þyngd? Hvað fær fólk til að slengja því framan í mann að maður sé orðinn of feitur? Heldur fólk að maður viti það ekki sjálfur? " Hva, helvíti hefurðu bætt á þig maður?" Hvuslags eiginlega helvítis dónaskapur er þetta? Þessa hluti veit maður sjálfur betur en aðrir og vill ekkert að menn séu að velta sér uppúr því sem því kemir ekki við.
Svo eru allir með allar lausnir á hreinu og vita nákvæmlega hvernig ég á að haga mínu eigin lífi . Erum við orðin svona hreinskilin að við eru orðin frek og dónaleg? Ég held það og ég held að ég sé ekkert betrui en aðrir í þessum efnum. Það er svo auðvelt að telja sig alltaf á réttu brautinni og hinir fari villu vega. Hinir eru nefnilega að feta sinn veg vegna þess að þeir telja hann þann rétta. Annars færu þeir annan veg. Hjálp getur maður þurft á að halda og þá er gott að eiga góða að til að leita til. En það er ekki hægt að vaða að næsta manni og segja honum hvað mani finnst hann ómögulegur og ístöðulaus.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.

3 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Þú ert svo mikið blóm!

February 6, 2007 at 10:50 AM  
Anonymous Anonymous said...

Ég segi nú bara "hvern/hverja á ég að berja??" Ég hef aldrei skilið hvernig það er í lagi að segja svona við menn en ekki konur!?? Við gerum okkur öll fyllilega grein fyrir hvernig við erum, það þarf enginn annar að segja okkur það *urrrrrr*.

Mér finnst þú allavega dásamlegur eins og þú ert!

Kveðja, Anna Lóa

February 7, 2007 at 11:06 PM  
Anonymous Anonymous said...

Það er jafn slæmt þegar það er sagt við mann "rosalega ertu horuð"! Það hefur reyndar ekki verið sagt við mig lengi hmmm skil ekkert í því ha ha

February 10, 2007 at 6:36 PM  

Post a Comment

<< Home