Sunday, October 02, 2005

2. Safn

Ég fór í 2. safn á dögunum. Með í för voru 3 nýliðar, 2 af Síðunni og einn að norðan. Þann að norðan hafði ég ekki áður séð en hina oft, sérstaklega annan þeirra. Er skemmst frá því að segja að þeir af Síðunni stóðu mikið framar í allri framkomu og háttvísin var í hávegum. Stóðu þeir sig í alla staði vel, sýndu mikinn áhuga á smalamennskunni, hökfrá augun numu hverja þúst og ekkert kvikt slapp undan smásjánni. Var sá að norðan meira að spá í það sem var nær, sá varla eða spáði í það sem við hinir höfðum áhuga á. Var eins og hann hefði áhuga sem lá fjarri því sviði sem fjallmenn á Austursíðu afrétti hafa verið þekktir af. Voru heldur leiðindi af þessu og einn af Síðungum átti virkilega í vök að verjast, enda alkunna að þeir geta hvorki sagt já né nei. Fór nú svo að þótti honum nóg komið af átroðningi og kom til smávægilegra átaka ,sá að norðan var afgreiddur í snatri.
Kom nú í ljós að afrétturinn var illsmalanlegur vegna snjóa, nútímafákar jafnt sem gamlir sátu fastir í hverri laut.
Var því gott að dvelja í Miklafelli og orna sér við eldinn sem logaði glatt undir fögrum náttúrulegur söngvum þar sem hver söng með sínu nefi.
Norðlendingurinn var hafður í bandi frammi í eldhúsi til að hinir skaftfellsku rólyndismenn þyrftu einskis að óttast fram að næsta degi.
Gekk það eftir.
Heimferðin gekk illa, vond færð og Norðlendingurinn við sama heigarðshornið, hafði greinilega ekki fengið það sama uppeldi og við Sunnlendingar.
Yrði gott að vera laus við að horfa upp á slíkar aðfarir aftur, aðfarir sem ekki verður lýst hér.
Er heim var komið var mér hugsað til Landbrytlinganna, sem ekkert þekkja nema sköllótta hóla, ekki hefði maður viljað vita af þeim á þessum slóðum, í þessari færð, í þessu veðri.
Kveðja
HP Foss

2 Comments:

Anonymous Anonymous said...

Helgi hefur þér aldrei dottið í hug að setjast niður og skrifa skáldsögu???? Þú yrðir hörku rithöfundur. Ég skal kaupa fyrsta eintakið!!

Kveðja Sigrún Inga

November 4, 2005 at 11:11 AM  
Anonymous Anonymous said...

Hva ertu svona sokkinn í EM í handbolta að þú bara mátt ekkert vera að því að blogga? Við viljum fara að sjá smá snefill af áhuga hérna, gætir kannski skrifað á milli leikja....

February 1, 2006 at 6:57 PM  

Post a Comment

<< Home